Hekla Daða

bullið mitt

02.09.2008 17:27:54 / heklada

krossið búið í bili

jæja þá er það bara þannig... ég náði að klúðra í 2 síðustu umferðunum og enda því 8 eftir sumarið!!!  alls ekki sátt við það...  2 stigum á eftir 5 sætinu þar sem ég ætlaði mér að vera... en get jújú kennt sjálfri mér algjörlega um það... klúðraði í seinni umferð á króknum og keyrði út úr brautinni endaði þar 10 í seinni og 8 eftir daginn.. ekki nógu gott...  svo um helgina drap ég á hjólinu eftir stóra pallinn í Bolaöldu og endaði 8. eftir fyrri umferð en kláraði seinni með stæl og endaði 6 eftir daginn... sem dugði mér þó ekki...   frekar fúllt en svona er lífið bara... stundum er bara eitthvað að trufla mann og lítið hægt að gera í því...

en málsháttur minn í dag er á þá leið...
 
FiskarFiskar: Ekkert tengir þig betur ástvinum þínum en stórt verkefni sem nær út fyrir tíma og rúm. Þið hafið endalausar skemmtisögur að segja að verkinu loknu.


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 21:05:53 / heklada

fari það norður og niður

hvað er þetta eiginlega...  fari það norður og niður... er þá verið að meina "það" eitthvað eigi að fara bæði norður og suður...  eða til himna og helvítis... eða hvað... skil ekki

já allavega ég er á leiðinni norður um helgina... 4. umferð í motokrossinu verður á Sauðárkróki á laugardaginn... eins og er er ég í 5.sæti overall og er bara MJÖG sátt við það... ætla halda því sæti... en það er hörð barátta við nokkrar stelpur þarna fyrir neðan mig... en ég skal standast þetta og klára í 5 sæti... eða það er allavega stefnan... samt eiginlega soldið víst að Sandra sys eigi eftir að ná mér að stigum ef hún heldur uppteknum hætti og klárar alltaf þarna í toppsætunum... en andskotinn hafi það ef ég verð 6. verð ég bara mjög sátt við það... það er í raun mitt markmið í hverri umferð að klára í topp 6...  þá eru þarna ljóskurnar 3 og svo systurnar á undan mér... það er eiginlega óraunhæft í augnablikinu að ætla að vinna þessar... en á eftir þeim skal ég vera... og er þá í fullt af báráttu við Margréti Mjöll, Sigrúnu, Þrúðu, Guðnýju og svo er nú ekki langt í Bínuna... 

en kúkalabbaveggur var eitthvað fyrir mér í dag á æfingu og náði ég að gleyma að beygja og klessti á moldarvegginn í síðustu beygjunni fyrir stóra pallinn í Bolaöldu (fyrir þá sem þekkja brautina)...  jújú og náði að snúa upp á hnéð á mér... og það er bara alls ekki gott...  búin að liggja með kælingu á hnénu í allan dag og éta bólgueyðandi... þótt ég sjái nú ekki mikla bólgu... en allur er varinn góður... ætla að reyna hjóla þetta úr mér á morgun... allavega sjá hvernig ég verð...

en jamm... enginn hér til að stjana við mig og strjúka hnéð mitt... sme er náttúrulega hundleiðinlegt... en fokk þet myndi hvort eð er ekki meika einhverja vorkunn hehe nenni því ekki... en allavega væri fínt að einhver hefði eldað matinn og svona... jájá afi gamli var í mat hjá mömmu og pabba um daginn..sem er nú ekki frásögufærandi nema fyrir það að hann skilur engan veginn að ég eigi ekki mann... hahaha spyr mig í hvert sinn sem ég hitti hann hvar maðurinn minn sé og er alltaf jafn hissa að ég eigi engan mann... en hann er reyndar orðinn soldið gamall og held ég að hann muni ekki á milli herbergja... kallinn orðinn 92 ára og býr enn einn og röltir í Sundhöllina og niður laugarveginn til að skoða mannlífið...  algjör húmoristi og verður mikill missir þegar hann kveður þennan heim... sem verður líklega fyrr en seinna...  en það er víst það eina sem er 100% víst í þessu lífi... að við deyjum öll einhvern tímann...

jæja ég ætla að halda áfram að kæla hnéð á mér...


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 17:57:44 / heklada

Handboltaskóli Aftureldingar

Allir grunnskólakrakkar...  

Handknattleiksdeild | ER/ÁM | 6.8.2008 | 14:42
Handboltaskóli Aftureldingar

Tímasetning:  Mánudaginn 11.ágúst til föstudagsin 15.ágúst frá kl. 09:30 – 12:00  í Íþróttamiðstöðinni að Varmá.

Markmið:    Farið verður yfir helstu atriði handknattleiks.  Sendingar, skot, gabbhreyfingar, spil og fleira.   Lögð verður áhersla í yngsta hópnum að kynna íþróttina fyrir krökkum á meðan lögð verður meiri áhersla á handboltaþjálfun hjá þeim eldri. 

Fyrir hverja:  Handboltaskólinn er fyrir krakka frá 1.bekk (fædd 2002) til 10. bekks (fædd ´93).  Hópnum verður aldursskipt þar sem áherslur eru mismunandi eftir aldurshópum.

Leiðbeinendur:  Leiðbeinendur skólans eru allir að þjálfa hjá handknattleiksdeild Aftureldingar.

Karl Erlingsson verður þjálfari elsta hópsins.

Ólafur Snorri og Sigurbjörg Kristjánsdóttir þjálfa miðstigið

Hekla Daðadóttir verður þjálfari yngsta hópsins

Einnig kemur Svava Ýr að þjálfuninni.

Skráning: tekið verður á móti skráningu og greiðslu á föstudaginn 8. ágúst frá kl. 17 - 19 í Íþróttamiðstöðinni að Varmá.  Einnig er hægt að skrá á netfangið lafrafn@khi.is">olafrafn@khi.is.  Ath. Takið fram nafn og kennitölu barns sem skráð er.

Verð:  3000.-  Hægt er að ganga frá greiðslu í fyrsta tíma (posi á staðnum).  Einnig er hægt að greiða inn á reikning 0116-26-010008 kt. 580785-0189.  Nauðsynlegt er að setja nafn barns sem skýringu og senda staðfestingu á netfangið va@fb.is">sva@fb.is

Kjörið tækifæri fyrir alla aldurshópa.  Sumir að prófa eitthvað nýtt, aðrir gera sig að enn betri leikmanni.



endilega koma og vera með, kíka á þetta og sjá hvort áhugi sé fyrir hendi að byrja að æfa í vetur...  þeir sem hafa verið að æfa eiga að sjálfsögðu að mæta líka :)

handboltaæfingarnar byrja svo í vikunni þar á eftir, eða um leið og skólinn

ég verð að þjálfa 6.fl.kvenna í vetur... það er eins gott að það verði almennileg þátttaka og stuð hjá okkur í vetur... nenni engu rugli sko ;)  og ekkert væl... við munum taka á því

sjáumst


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 21:49:42 / heklada

síðasta helgin í júlí

Föstudagur, Sauðárkrókur
jæja síðustu helgina í júli var skroppið í smá ferðalag norður í land...  við Tedda og Aníta  byrjuðum á að fara á Sauðárkrók og hjóla soldið í brautinni þar ásamt Ásdísi og Tanna...  stubbarnir þeirra voru með í för...



Laugardagur-Sunnudagur, Akureyri
eftir krókinn tók Aníta við akstrinum... úff að sitja á milli þeirr mæðgna á leiðinni var eiginlega soldið fyndið... ekki svo langt síðan ég var í Anítu sporum við aksturinn og svo kannski ekki svo langt þangað til ég verð í Teddu sporum og sit í bíl með Andra mínum... úff!!!!  en á akureyri gistum við í Nikita/Kelahúsi... bara snilld... þar var fullt af liði og bara snilldar helgi í alla staði...  við hjóluðum í "nýrri" akureyrarbraut... frekar leiðinlegar breytingar að mínu mati en brautin var líkari endurohring en krossbraut...   góð æfing en dýr... brautin át upp bensínið hjá öllum þar sem nauðsynlegt var að vera í hvínandi botni alls staðar til þess að festar hreinlega ekki í brautinni...



alltaf gaman að fíflast inn á milli... Valdi er þarna að sýna Kjartani í tvo heima...  vildi ekki vera þarna með hausinn!!!



Arnar að láta pabba gamla tékka eitthvað á hjólinu...



Margrét Mjöll sæta pæja...

Mánudagur , Mývatn
Endurotúrinn mikli frá Mývatni að Vatnajökli
frá Akureyri fórum við Tedda að Mývatn og heimsóttum Baðvarðarfjölskylduna æðislegu...  Stebbi og co eru audda bara snilldarlið...  fyrst af öllu var það matur í Jarðböðunum og svo einn kaldur úti í lóni...  ótrúlega æðislegt svæði Jarðböðin... ekki klikka á þeim ef farið er í Mývatnssveitina... 
eins og vera ber þegar komið er að Mývatni þá var farið í enduroferð...  jájá og engan smá túr að þessu sinni... 12 tíma ferð, frá 9 að morgni til 9 að kvöldi... 270 km voru hjólaðir, yfir ár, sanda, hraun, móa, grjót, leirur og í hitastigi frá 22 gráðum niður í um 10 gráður þegar við vorum í skálanum hjá Kistufelli...  og það var soldið mikið kalt þegar maður var bara á hlýrabolnum undir krosstreyjunni!!  brrrrr    en hrikalega var þetta gaman!!!



í hópnum voru Stebbi, Eyrún, Jonni og Signý, Kristján og Sigþóra, ég og Tedda...  frábær hjópur að öllu leiti...


hérna er ég að fara yfir eina af ánum sem við þurftum að fara yfir... 
(myndin er tekin af Jonni.is)


þarna fórum við líka yfir og Tedda snillingur fór á hausinn og drekkti hjólinu sínu!!!  það þurfti að taka hjólið í sundur... eða allavega tappa af því öllu vatni, sem fór eiginlega alls staðar sem það átti ekki að fara...





þarna festi Eyrún hjólið sitt og öll fjölskyldan var komin úti til að losa hjólið sem var farið að sökkva í leir... 



og svo þegar hjólið var komið uppúr...  þá var það Eyrún sjálf sem var föst!! Jonni þurfti að hjálpa múttu sinni sem var farin að örvænta...


 
Tedda var eina stelpan sem fór yfir þessa á án þess að drepa á og þurfa að hoppa útí og ýta hjólinu... það var ekkert spes.... og miklu meira pirrandi að komast að því að lokað hafði verið fyrir tankinn minn þar sem ég var að taka myndir af baðvarðarfjölskyldunni losa Eyrúnarhjól!! frábært bara... hehe    maður var allavega blautur og kaldur upp að lærum eftir jökulkalt vatnið...


þarna sjáum við í Vatnajökul...  þetta eru sem sagt flæðurnar... soldið gaman að láta hjólið fleyta yfir árnar þarna...




og svo þegar kannski klukkutími var eftir þá sprengdi Tedda dekk...  hehe ótrúlegt að þetta var eina punkteringin í ferðinni....  algjör snilld...


ferðin á enda... og ekkert eftir annað en að keyra lokaspölinn... 



Auminga Sara mín var bara föst inni í búrinu sínu allan daginn þar sem enginn var til að passa hana á meðan á túrnum stóð... en svona er að vera hundur það getur verið hálfgert hundalíf á köflum... en hún var hrikalega sátt þegar ég hleypti henni út...



þessi ferð var bara það skemmtilegasta sem ég hef gert í langan tíma... alveg hreint frábært í alla staði...  eftir á að hyggja hefði maður átt að taka með sér auka peysu hehe því kuldinn var eiginlega að gera útaf við mig... puttarnir dánir og mjög erfitt að kúpla og bremsa... en þetta hafðist allt saman og ég var mjög sátt og ánægð þegar heim var komið... og enn meira sátt og sæl þegar í lónið var komið... það er bara æðislegur staður eins og ég hef sagt...

og svo bara mesta snilldar hjól sem ég hef séð á æfi minni...  Við Tedda rákum upp stór augu þegar við stoppuðum á Blöndósi á leiðinni suður og sáum reiðhjól á tveimur hæðum!!! hahhaa algjör snilld...



þangað til næsta elskulega mývatnsfólk...   luuuuuuuvvv júúúúú




» 1 hafa sagt sína skoðun

25.07.2008 01:07:06 / heklada

pínu þreytt dæmi

hvernig er eiginlega með þetta að vera ein dæmi... það er orðið soldið þreytt...  en samt rosa þægilegt að vera ein með stubbinn og þurfa ekki að taka tillit til skoðana annarra ;)   en samt... það er alveg pínu einmannalegt að vera alltaf í tölvunni á msn á kvöldin... já eða glápa ein á tv eða lesa...  þetta er að verða fínt sko... er ekki einhver eðalgaur þarna úti fyrir mig...  en það má ekki vera bara hver sem er sko... hann þarf að uppfylla ýmis skilyrði... og svo skiptir víst líka máli að tilfinningar flæði í báðar áttir svo þetta er pínu erfið leit... eða ekki leit... eiginlega er ég að bíða eftir að hann detti fyrir fæturnar á mér eða ég keyri hann niður í brautinni eða eitthvað 8)   annars er alveg kominn tími á þetta finnst mér sko...  endilega bjóða mér bara á deit :$ það voða gaman...
jæja kannski finnur hann mig á Akureyri um helgina eða næstu eða eitthvað... hehe    hef mikla trú á að það bíði einhver þarna úti sem hentar mér ákkúrat... eða mér og Andra þar að segja... já og Söru... shæsss þetta er orðið pínu flókið dæmi hjá mér 8|

læt fylgja mynd af mér og stubb svo draumaprinsinn viti nú hvernig við lítum út :haha:




» 8 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 18:07:18 / heklada

Þyrnirós svaf heila öld :/

jamm hér sjást keppendurnir í kawasakicup... 
nema audda ég því þegar þessi mynd er tekin
er ég sofandi takk fyrir !!! 





» 0 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 22:21:45 / heklada

Þyrnirós

já ég er búin að lesa mér vel til í ævintýrunum... þetta er að verða mjög spes... ég hlýt að hafa verið þyrnirós í fyrra lífi... hver sefur annars yfir sig tvær keppnir í röð... rétt vakna til að koma mér af stað og missa ekki af herlegheitunum8|
jújú fyrir keppnina í álfsnesi um daginn þá vakna ég kl. 9:07  átti að vera mætt í skoðun með hjólið kl. 9:00  og út í braut í tímatökur klukkan 9:30 hahahah shittur... en vitir menn ég náði þessu öllu... keyrði frá húsinu mínu kl.9.15 búin að vekja andra, klæða mig, keyra bílinn niður fyrir, setja kerruna á, henda hjólinu mínu uppá og svo keyra í burtu!!!!  örugglega íslandsmet   og stóð mig bara vel í þessari umferð í íslandsmótinu :) 



síðan var það næsta keppni...  núna um helgina þá var Kawasakibikarkeppnin... og ég átti að vera mætt í skoðun með hjólið kl. 9:00  og út í braut klukkan 9:25;)    ennnnn  þyrnirós svaf á sínu græna heima í rúmi þegar Tedda var búin að hringja 3 sinnum í gemsann og svo loksins klukkan 9:30 í heimasímann að furða sig á því hvar ég væri!!!!  shittur....  þá var eftir að vekja andra, klæða sig, keyra niður fyrir með bílinn og henda hjólunum uppá kerruna...  kræst  ennnn stelpan náði að fara 2 hringi í tímatökunni með strákunum og fékk að sjálfsögðu að keppa þar sem þetta var meira svona gannimót en hvað annað... :haha:   og stelpan stóð sig eins og hetja bara...  náði að vera fyrst næstum hálfan hring í fyrsta mótói þangað til Signý kom á blastinu fram úr mér og hvarf svo bara:s  og ég endaði í 3 sæti því Aníta náði líka fram úr mér...   í öðru motoi endaði ég svo í 2 sæti... anítan náði mér næstum því en var í einhverju basli með mömmu sinni í starinu... eitthvað að knúsast þar víst hehe    og svo í þriðja motoi var svaka reis á milli Signýar og Anítu þar sem þær báðar náðu flottu starti og stungu alla aðra af.... og ég endaði í 3 sæti þar og þá í 3ja over all....     samt ekkert gaman að hjóla svona aleinn allan tímann eiginlega...   vantaði alveg einhvern til að keppa við nema einn af 85u strákunum var aðeins að elta mig í 2 motoum....  
en geggjað skemmtilegur dagur og vonandi verður svona aftur á næsta ári... ef maður verður þá á kawa aftur;)  kemur allt í ljós...


dísús það er eins og maður sé með ýstru á þessari mynd!! hahah

næsta á dagskrá er svo að kíkja á norðurlandið og testa brautirnar á akureyri og króknum áður en íslandsmótið verður þar... næstu 2 umferðir verða í landi norðanmanna...  

þangað til næst...  endilega henda kveðju á mig... ein pínu einmanna á milli hjólatúra:|

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.07.2008 23:43:15 / heklada

Kawasaki bikarkeppni

á morgun laugardag verður kawasaki bikarkeppni...  aðeins kawasaki hjól verða í þessari keppni... allir grænir og glaðir ;)

mótið er í Bolaöldu, sem er hinu meginn við veginn á móti Litlu Kaffistofunni...

Dagskráin er þessi

Mæting: Skoðun hjól: Skoðun lýkur:  
Opin flokkur stelpur + 85cc stelpur og strákar 09:00 09:20  
250F + 450F 09:20 09:40  
       
Tímataka og upphitun Opin flokkur stelpur + 85cc stelpur og stráka 09:25 09:40 15:00
Tímataka og upphitun MX1 og MX2 09:45 10:05 20:00
Flokkur: Röðun á ráslínu: Keppni hefst: Aksturstími:
Opinn stelpur + 85cc stelpur og strákar 10:05 10:15 3x12 + 2 hringir
250F + 450F 10:35 10:45 3x15 + 2 hringir
Opinn stelpur + 85cc stelpur og strákar 11:10 11:20 3x12 + 2 hringir
Barnahjól 65cc 11:40 12:00 Fjör
250F + 450F 12:00 12:10 3x15 + 2 hringir
Opinn stelpur + 85cc stelpur og strákar 12:35 12:45 3x12 + 2 hringir
250F + 450F 13:05 13:15 3x15 + 2 hringir
 Barnahjól 65cc  13:25  13:45  Fjör
Keppni lýkur     13:55
       
Verðlaunaafhending     14:30




» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 22:01:39 / heklada

Unglinganámskeið Motomos

þessa vikuna er það Valdi #270 sem kennir unglingum mótomos tökin á hjólinu...

allir 12-18 ára velkomnir í motomos brautina á Tunumelum... 

eina sem þarf er...
  • skrá sig í klúbbinn borga gjaldið (4000 kr á einstakling eða 6000 á heimili, hægt að gera á staðnum)
  • kaupa miða í brautina á N1 (500 fyrir lítil hjól og 1500 fyrir stór hjól, 125cc og stærra)
  • mæta með hjólin á kerru upp í braut
koma svo og fjölmenna á námskeið hjá Valda...  
Gulli #111 tekur svo næstu viku

hægt að senda á mig spurn ef það eru einhverjar... 
ég er víst æskulýðsfulltrúi motomos ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.06.2008 00:55:26 / heklada

Brautin opnar í dag 17.júní!!!!!

Þann 17 júní kl 12:00 mun brautin okkar verða opnuð með viðhöfn og verður af því tilefni eitthvert „húllumhæ“ og eru allir velkomnir, opið verður fram til kl 21:00.

Selt verður í brautina á staðnum (kort og seðlar) og er miðaverð er eftirfarandi, félagsmenn MotoMos kr 1.500,- utanfélagsmenn 2.000,- lítil hjól 500,-.

Árskort og fleiri spennandi hlutir í starfi félagsins verða kynntir á næstu dögum hér á heimasíðu félagsins, ljóst er að ef fram fer sem horfir mun mikið verða af skemmtilegum hlutum að gerast fyrir félagsmenn í sumar.

Viljum við hvetja alla sem áhuga hafa á hjólamennsku að drífa sig í því að ganga í félagið, hér til hliðar eru upplýsingar um aðild og annað sem að gagni má koma.
Hægt verður að skrá sig í félagið á staðnum.

Að lokum viljum við ítreka þakkir okkar til allra þeirra sem hafa lagt hönd á plóg við gerð brautarinnar, sérstakar þakkir fá Eysteinn hjá Suðurverk og Þórir „sívinnandi“. Félag með menn eins og þessa og fleiri innanborðs getur flutt fjöll, enda er bókstaflega búið að gera það.

Einnig viljum við þakka Mosfellsbæ og öðrum sem hafa aðstoðað okkur og styrkt á ýmsan hátt.

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 00:49:13 / heklada

slíta sleit slitum slitið

kennimyndir sagna

spes

rugl veður á laugardaginn... úti og í hausnum á mér... rugl gaman samt að hjóla í svona viðbjóði... maður er hálf ruglaður í hausnum líklega... enda fallin af bleika skýinu... heilinn minn var búinn að vera ráða of miklu... fær ekki ráða meira... núna er það bara tilfinningin og þetta líffæri sem heitir hjarta en er samt ekki eins og hjarta... afhverju ætli það sé kallað hjarta... er bara einhver vöðvaklessa sem blæs út og dregst saman á víxl...  og hver segir að maður finni eitthvað fyrir því... eins og andri spyr mig stundum... "mamma, hvað notaru mest?"...  og ég "svaraði lungun.... til að fá súrefni"... "nei mamma, auðvitað er það heilinn, segir hann ekki lungunum að draga að sér lofti"... þetta barn er snillingur...  þannig þetta að hlusta á hjartað er kannski bara bull... heilinn segir allt sem segja þarf... samt fær maður stundum illt í hjartað ef manni líður illa... og ef maður lætur öðrum líða illa... en lífið heldur áfram sinn vanagang...  það eru fleiri fiskar í þessum stóra sjó...

við andri ætlum á esjuna á morgun ef það verður skikkanlegt veður... svo er æfing klukkan 2 í álfsnesi... aron ómars ætlar að taka okkur anítu í gegn... bara gaman að því ;)   það vonandi skilar sér út í braut... minns var engan veginn nógu sáttur með laugardaginn... endaði í 9.sæti... piff ekki nógu gott...  var með 6. besta tímann í tímatökunni og ætla mér bara að halda því sæti... og ekkert rugl... það þýðir að maður þarf að keyra alla hringi eins og hraðasta hring... og hana nú... ekkert kjaftæði...

akureyri næstu helgi.. bíladagar og læti... endurokeppni á sunnudeginum... bara gaman að því... spurning hvort maður fari á fös eða lau norður... spurning líka að koma við á sauðárkróki og hjóla þar aðeins... aldrei prófað þá braut.. fínt að testa hana áður en maður fer að keppa þar í ágúst...

leiter... over and out


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 23:34:07 / heklada

lokið

jæja þá er skólavetrinum að ljúka formlega...  einkunnaskil og skólaslit í fyrramálið... eftir hádegi á morgun eru nemendur Lágafellsskóla allir komnir í sumarfrí... við tekur að ganga frá stofunni og klára nokkur atriði áður en minns fer í sumarfrí... starfsmenn Lágafellsskóla eru flest allir að fara til Spánar á föstudaginn.. eeeennn  nei nei minns er að fara keppa á laugardaginn í fyrstu umferð íslandsmótsins í motokossi... Sólbrekka fyrir utan Grindavík er keppnisstaður... þannig engin sól og sumarylur á spáni þessa vikuna hjá minns...   en þetta velur maður og því þarf enginn að vorkenna neinum eða halda að mig hafi ekki langað til að fara...  það er alltaf gaman að hafa val ;)

á morgun er líka æfing hjá Ed í Bolaöldu... ég fæ að mæta á seinni æfingu á morgun en ætla svo að vera á morgunæfingum hjá honum í sumar... bara snilld að vera í sumarfríi 8)  

við Andri skelltum okkur að hjóla áðan.. vorum mætt upp í Bolaöldu um 7leytið... komum svo heim rúmlega 10 og sumir beint í sturtu og svo rúmið... búinn á því stubburinn...

allt að gerast í mosóbrautinni... fyrr en seinna verður byrjað að hjóla í henni... SNILLLLLD

allt að gerast í húsinu í næstu götu...  og allir ennþá á bleika skýinu ;)

þangað til næst
verið góð hvert við annað




» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 20:35:30 / heklada

Mosóbrautin

jæja þá er allt að fara í gang...  á morgun verður byrjað að keyra jarðvegi í brautina uppi á melum... bara geggjað.. líður ekki á löngu áður en farið verður hægt að keyra þar... frekar mikið spennandi bara...

endilega kíkið á myndir af henni á motomos.is þar eru myndir og video


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 22:55:24 / heklada

Enduro

geggjuð enduroferð síðast laugardag... Valdi stóð við orð sín og fór með okkur í enduroferð...  endilega kíkið á myndirnar... komnar í myndaalbúmið...




» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 10:13:02 / heklada

Ísland og slúður

jamm við verðum með á morgun... frábært... mér fannst þetta frábærlega gert hjá þeim í gær... Engin spurning að þau eiga eftir að lenda í topp 10

já og ég alltaf sami sauðurinn.. fór ekki að taka bensín með 10 króna afslætti á miðvikudaginn... ótrúleg!!

æfing í gær hjá Garry.. geggjað...  alltaf gaman og alltaf að læra

endurotúr á morgun með Valda og stelpunum... bara spennó... hlakka til...
svo æfa í næstu viku í sólbrekku, mögulega fara á sunnudaginn þangað...

hef verið látin vita að síðan er hætt að vera skemmtileg!! allt of mikið af mótorhjólasögum og dóti... en jamm svona er það... ég blogga um það sem er að gerast hjá mér hverju sinni...  en allavega þá er ég enn á bleika skýinu og eins og vinkona mín sagði í gær... það er eins og þið séuð búin að vera saman í 10 ár... það svo afslappað andrúmsloftið á milli ykkar, allt svo þægilegt... sem það er líka... allt voða frábært bara... en eins og fyrridaginn þá gerist allt voða hratt hjá mér hvort sem manni líkar betur eða verr... hann að byggja og audda fer ég að skipta mér af og allir löngu farnir að láta hugann fljúga mörg ár fram í tímann!! 8)

þangað til næst... 
góðar stundir og verið góð hvert við annað
muna að dagurinn í dag getur verið sá síðasti...

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 41